en ekki mikið um öfluga hreyfingu. Úr því verður bætt á næstu vikum. Mikið að gera við ritgerðarskrif, skilaði ritgerð nr. 2 á einni viku, þær eru frekar myndarlegar þessar sem maður gerir í M.Ed náminu. Svo þegar einkunnasýki og metnaðargirni á háu stigi koma saman, er ekki við góðu að búast
Er búin að hitta einkaþjálfanemann, sem ætlar að æfa sig á mér. Við náum vel saman og ég fékk að finna hressilega fyrir æfingunni í dag, maður lifandi. Svo teygði hún vel á mér, nokkuð sem maður getur aldrei gert svona vel sjálfur. Ef þið sjáið konu með skrítið göngulag um helgina, þá er það líklega ég með strengjasveit í lærum og rassi......
Þegar maður æfir alltaf einn eins og ég geri  er svo gott að fá nýjar æfingar og einhvern sem segir manni hvað maður á að gera. Gæti alveg vanist þessu og ef ég á einhvern tímann eftir að hafa efni á einkaþjálfra í nokkra mánuði þá yrði þessa flotta stelpa fyrir valinu, ekki spurning
Hitti skvísuna aftur á sunnudag og þá í Laugum. Eftir þann tíma ætla ég að taka góða slökun og leggjast í heita pottinn í sundi og liggja þar þangað til kjötið losnar af beinunum. Ég á það svo skilið....
Þegar við ræddum saman á mánudaginn sagði ég henni frá mínum markmiðum varðandi skokk, fitutap og fleira. Æfingaplanið sem hún  setur saman fyrir mig tekur á þessu öllu sem er auðvitað frábært. Í dag var ég t.d. látið taka 7 mín interval, hlaup og ganga til skiptis, til að keyra upp bennsluna. Ég prófaði að taka síðustu mínútuna á 11 Km/klst. og vá hvað það er hratt.... mér  tókst það en púlsinn fór hátt upp, það á víst að vera hið besta mál..... Spennandi
fékk það staðfest í síðustu viku að ég væri á réttri leið. Skellti mér í mælingu í uppáhalds stöðinni minni, World Class í Hafnarfirði. Byrjaði átakið á því að fara í mælingu kringum 20. mars. Eftir rúmar 6 vikur höfðu fokið 13 cm og heil 6 % af fitu. Ég veit að þessi fituprósentumæling er umdeild en hún segir mér margt.  Síðustu vikur hef ég þyngt umtalsvert lóðin sem ég lyfti miðað við það sem ég hef verið að gera s.l. ár.
Viktoría er enn með stæla, sýnir bara að ég hef þyngst um 1.5. kg eftir að hafa misst rúm 3, en ég veit að það eru vöðvar en ekki spek svo ég er alveg pollróleg. Hún þarf sko að fara að passa sig.....
Byrja á spennandi verkefni á morgun, mánudag þar sem ég samþykkti að vera lokaverkefni fyrir nema í einkaþjálfun og fæ að launum fría einkaþjálfun í einn mánuð. Hlakka mikið til því það var alveg kominn tími á nýtt prógram og vonandi fjúka fleiri cm og enn fleiri fituprósentur   Spennandi að sjá árangurinn eftir þrjú skipti í hverri viku í heilar 4 vikur. Ég er tilbúin fyrir puð, púl og góðan árangur. Það þarf víst að vinna fyrir þessu, þessir blessuðu vöðvar þjálfa sig  víst ekki sjálfir
Leyfi ykkur að fylgjast með
eða þannig....
Þannig var það a.m.k. ekki hjá mér. Ég fór og heilsaði uppá Viktoríu, vinkonu mína á baðherberginu uppúr kl. 7 og sú var í stuði. Hún sýndi allt frá 1.1. kg og uppí 188 kg. glætan, spætan að ég geti tekið mark á þessu bulli. Það var alveg sama hvað ég reyndi að tjónka við hana, hún hélt áfram að rugla. Ég færði hana til á gólfinu, því stundum lætur hún svona ef hún stendur á samskeytum. Nei nei ekkert gerðist. Bara leiðindi...  sú þarf að fara að passa sig.......Í alvöru.
Ég var búin að ákveða að fara í ræktina og lyfta og það þurfti ofurkrafta og 3 tonn af þrjósku til að koma mér þangað.Svei mér þá, mér fannst Viktoría hvísla: Fitubolla, þú getur þetta ekki, og sængin gargaði: Komdu til mín. ég er svo mjúk og góð og koddinn bætti í með því að segja:, Ég skal hugga þig .
EN, NEi  NEI OG AFTUR NEI... ég klæddi mig og fór í ræktina. Heilsaði upp á vigtina þar og hún sýndi 3 kg fleiri en í síðustu viku. Halló Hafnarfjörður, hvað er í gangi ?  Lyfti  og djöflaðist í rúman klukkutíma og reyndi að gleyma þessum vigtaraunum, en velti því samt fyrir mér hvað væri að. Ég sem er búin að vera svo dugleg, tók vatnsdrykkjuna í gegn og skrái hjá mér hvert drukkið vatnsglas eða 1 1/2 - 2 1/2 lítra á dag. Labba, skokka, lyfti.... Er ég kannski að breytast í hval, hvað veit ég ?
Fékk svo  óstöðvandi hiksta á meðan ég tók plankann og trúið mér, það er ekki þægilegt
Vona bara að minn skammtur af leiðindum sé búin í bili því að ég ætla að gera svo margt skemmtilegt í dag
Mig langar að kynna fyrir ykkur mikilvæga persónu í mínu lífi. Þessi persóna er í raun og veru baðvigt heimilisins,  sem ég hef persónugert.
Stundum erum við Viktoría sáttar hvor við aðra og stundum ekki og það er mjög oft. Trúið mér   Hún er bara  þessi skynsama og ofurheiðarlega týpa sem vill mér vel, þrátt fyrir allt. Það er bara ég sem er ekki alltaf tilbúin til að taka mark á aðvörunum hennar líkt og þegar hún sýnir of háa tölu. Þó svo að buxnastrengurinn skerist inn í mittið, bumban vísi niður og út og lærin nuddist saman í hverju skrefi. Ég veit þá upp á  mig skömmina en neita að horfast í augu við sannleikann og þá er vesalings Viktoríu sparkað langt undir baðskáp, stundum í margar vikur eða mánuði jafnvel. Ég segi það oft að hún væri komin út um gluggann fyrir löngu ef það væri gluggi á baðherberginu mínu. Auðvitað gæti ég hæglega rölt með vinkonuna  fram á gang og vippað henni í ruslalúguna.... vúúúppp    Jafnvel hlustað þegar hún rennur niður rörið, rekur sig í  og mölbrotnar þegar hún lendir í tunnunni.  Sjáið þið þetta ekki alveg fyrir ykkur ? Get  bara ekki gert henni það því hún er vinkona mín og segir mér alltaf satt   Það er mitt hlutverk að hlusta og taka mark á henni. Hún á það inni hjá mér.
Síðustu vikurnar hefur okkur samið óvenjulega vel. Henni var dröslað undan skápnum, þrifin og pússuð þar sem hún var orðin býsna rykug eftir langa dvöl í fylgsni sínu.  Hún fékk líka nýjar rafhlöður og síðan hefur okkur samið vel.  Hvers vegna, jú ég er að ná góðum árangri
Við Viktoría eigum okkar gæðastundir á föstudagsmorgnum. Þess á milli látum við hvora aðra að mestu í friði en kinkum gjarnan kolli, þegar við sjáumst þess á milli. Ég er fullviss um að við vinkonurnar eigum eftiri að eiga margar góðar stundir á næstunni. Markmiðin mín eru á hreinu og Viktoría ætlar að hjálpa mér að ná þeim
mína fyrstu æfingu með Skokkhópi Garðabæjar. Það var vel tekið móti mér og svo var önnur sem var líka að mæta í fyrsta sinn, við báðar búnar að skokka eitthvað sjálfar.  Farinn var ca 8 km hringur en mér tókst að dragast svo hressilega afturúr að ég missti af hópnum. Var svo laaaang síðust en hvað um það... ég komst á leiðarenda, heil á húfi   Fann mér góða leið til baka. Það skiptir öllu, er það ekki  ?    Ástæðan er líklega sú að asminn var alveg að fara með mig, svo þegar ég kom heim kom í ljós að loftgæði voru ekki uppá sitt besta. Nú er ekkert annað en að taka þetta föstum tökum, vera duglegri að nota asmapústið, ekki bara þegar ég er að æfa í ræktinni og skokka. Minn erfiðasti tími varðandi gróðurofnæmið er að koma og þá  er eins gott að vera við öllu búin
Ekki fer ég að hætta að fara út að skokka, ó nei
Gengur bara betur næst, þá ætla ég að fá alla leiðarlýsinguna svo ég geti náð hópnum ef ég missi af þeim. Þetta tekur sinn tíma og ekki í boði að gefast upp
Gleðilegt sumar  Nú er meiningin að byrja að blogga aftur og það af nokkrum krafti.  Tilgangurinn er að geta seinna glaðst yfir góðum árangri og miðla minni reynslu til þeirra sem enn sitja í sófanum og spá og spekulera
Nú í vetur gerði ég nýtt markmiðakort varðandi það sem ég stefni að þetta árið. Árið 2011 var að mörgu leyti i erfitt en samt tókst mér að stíga út úr þægingdahringnum og skora á sjálfa mig á fleiri en einn máta. Það er allt hægt ef viljinn er fyrir hendi. Meira um það síðar.
Nú er ég  komin af stað enn einu sinni og ætla mér að yfirstíga það sem lengi hefur staðið til, nefninlega að taka skokkið föstum tökum ásamt  því að mæta í ræktina í sumar og lyfta þungt, mun þyngra en ég hef gert s.l. ár     Tilgangurinn er að bæta heilsuna  og útlitið og ekki verra ef nokkur kg fjúka um leið, rúm 2 hafa þegar látið undan og fleiri eiga eftir að fjúka. Mér til hvatningar eru yndislegar mæðgur, systir mín og elsta dóttir hennar sem hefur hjálpað mér með matarskammtana. Það kom nefninlega í ljós að ég borðaði hollan mat, bara of mikið af honum í einu, já það er víst líka hægt
Markmiðin  eru að mestu tengd árangri í skokkinu. Mataræðið skiptir miklu máli  og þyngdartapið fylgir þar með sem bónus. Það sem hefur  reynst  mér vel s.l. 4 vikur er að taka einn nammidag í viku. Nammidagana má færa innan vikunnar, stundum hentar vel að hafa þá á laugardögum, stundum á sunnudögum eða jafnvel í miðri viku, allt eftir því hvað hentar best mínu mynstri. Það merkir samt ekki að ég komi mér fyrir með skólabækurnar á nammibarnum í Hagkaup
Meira eftir helgi, nammidagur á morgun og ég ætla að njóta hans
ég er býsna góð í því að standast freistingar, það eina sem háir mér er ilmandi kaffi, dökkt súkkulaði og góðar bækur. Það er erfitt að standast slíkar gersemar
Ég fylgist  með bókmenntaumræðunni og horfi spennt á Kiljuna á RUV.  Þegar  ég var í grunnnáminu í KHÍ verðlaunaði ég mig með spennandi bók eftir hverja prófa/verkefnalotu í lok annar.
Fyrir valinu verður oftar en ekki kilja, stundum kemur bókin strax út í pappírskilju, stundum þarf að bíða og það geri ég. Ég hef hvorki pláss né peningaráð til að kaupa eintómar innbundnar bækur. Stundum borgar það sig þegar um uppfletti- og fræðibækur er að ræða en annars ekki.
Þá komum við að kjarna málsins, í pappírskilju stendur nákvæmlega sami texti og í innbundnu bókinni. Kiljan er léttari sem er kostur, sér í lagi þegar maður situr eða liggur með bókina uppí rúmi eða kippir með sér til að lesa í strætó eða á kaffihúsum t.d. Svo er pappírskiljan mun ódýrari sem er mikill kostur, að mínu mati.
Í vikunni kom ég inní eina af verslunum Eymundsson í Reykjavík og spurði ungan afgreiðslumann um tiltekna splunkunýja bók. Jú bókin var til en aðeins í innbundin í harðspjaldaútgáfu. Í sakleysi mínu innti ég afgreiðslumanninn eftir því  hvort bókin fengist einnig  í kilju. Hann svaraði með spurningu sem var eitthvað á þá leið hvort ég vissi um hvers konar eðalbókmenntir væri verið að ræða ?
Ég vissi svo sem að bókin væri góð, hún vakti a.m.k. athygli mína og var rétt volg úr prentsmiðjunni en ég  skil ekki þessa áráttu hjá útgefendum að gefa ekki færi á að velja um innbundna bók eða pappírskiljuna.   Þau eru mörg meirstaraverkin sem hafa verið gefin út í kilju og eitt er víst að ég hefði hiklaust fest kaup á bókinni ef ég hefði haft tækifæri til þess að fá hana í minna broti og talsvert ódýrari
og gerir okkur að því sem við erum.  Það er mín skoðun. Að sjálfsögðu erum við misjöfn og sumir læra hraðar og betur en aðrir
Fyrir atvinnuleitendur er mikilvægt að stefna að einhverju mikilvægu á meðan atvinnuleitinni stendur og ekki verra ef hægt er halda hvoru tveggja til streitu. Ef við tökum líkamsrækt sem dæmi þá er auðvelt að setja sér ný markmið þegar öðrum er náð
Þessi rúmi frítími sem atvinnuleitendur hafa yfir að ráða fer að sjálfsögðu í atvinnuleitina sjálfa og jafnvel námskeið og umönnun heimilisfólks. Það er líka hægt að nýta ákveðinn tíma á hverjum degi til að vinna verk sem hafa setið á hakanum. Það má t.d. fara í gegnum það sem þarf að flokka og henda á heimilinu, flokka gamlar myndir og allt það sem hefur ekki verið hægt sökum tímaskorts þegar viðkomandi var í vinnu.
Dagleg rútína er mikilvæg og það að fara á fætur, þó ekkert ákveðið verkefni  bíði getur verið erfitt, mjög erfitt.Trúið mér.  Ekki síst um dimman vetur þegar kaldir vindar blása og rigning eða slydda lemja rúðurnar. Þá er nú huggulegra að faðma koddann sinn og vefja sig betur inní sængina  Eðlilega.
Á námskeiðinu Nýttu kraftinn, sem tvær eðalkonur stjórna, ætlað atvinnuleitendum, var okkur kennt að koma okkur upp  mynstri, a.m.k. 4 klukkustundir daglega þar sem ákveðnum fyrirfram plönuðum verkefnum er sinnt. Atvinnuleitin er þar að sjálfsögðu fyrirferðarmikil s.s. gerð ferilskrár og fl. en það má líka gera ýmislegt skemmtilegt við tímann sinn.  Þá er tækifærið að gera það sem okkur hefur lengi langað að gera en ekki haft tíma til.
Fyrir áhugasama bendi ég á heimasíðuna www.nyttukraftinn.is
Ég valdi að taka líkamsræktina föstum tökum, ekki síst vegna þess að ég þráði að ná árangri og nú fékk ég tækifæri til að stunda hana alla virka daga og oftar en ekki líka á laugardögum. Ég hafði svo sem verið í ræktinni áður en tekið þetta meira í törnum eins og svo margir aðrir og verið fastur áskrifandi á líkamsræktarstöð án þess að nýta mér aðstöðuna. Hver þekkir það ekki
Með tímanum fór ég að leggja meira á mig og þegar góð kona benti mér á að líklega þyrfti ég að skokka til að ná betri árangri þegar ég var ósátt við árangurinn varðandi fitutap, tók ég hana á orðinu. Þetta byrjaði rólega, skórnir mínir voru ekki nægilega góðir svo ég fjárfesti í nýjum og þá gat ég skokkað lengur. Ég tók þetta í lotum til að byrja með, skokkaði í 1-2 mínútur og gekk í 5 mínútur. Svona æfingar tók ég í 20-30 mínútur á hlaupabrettinu, meðfram því að lyfta lóðum. Þegar voraði fór ég að fara út að skokka, byrjaði mjög rólega því það er töluverður munur á því að skokka inni á stöð á mjúku bretti og skokka úti á malbikuðum göngustígum. Góðir skór eru nauðsynlegir og að sjálfsögðu notar maður ekki sömu skó og notaðir eru í ræktinni
Fyrsta almenningshlaupið var  Kvennahlaupið í Mosó í byrjun júní þar sem ég kom sjálfri mér  á óvart og skokkaði megnið af leiðinni eða 5 km. Þá kom  miðnæturhlaupið í Laugardalnum nokkrum vikum síðar, ég skokkaði 5 km  og þá var ekki aftur snúið   Ég setti mér það markmið að fara 10 km í Reykjavíkurmaraþoninu, sem ég gerði s.l. laugardag.  Það var stolt og ánægð hlaupakerla sem skokkaði og gekk 1o km og naut hverrar mínútu.  Sumarið hef ég nýtt vel í að æfa fyrir hlaupið og ætla mér að halda áfram því það verða fleiri hlaup næsta sumar og ný markmið hafa litið dagsins ljós. Næsta sumar  er meiningin að bæta tímana, bæði í 5  og 10 km
Bara það að byrja að skokka á brettinu hefur kennt mér að ég get allt sem ég vil og á þessu tæpa ári sem liðið er frá því að ég byrjaði markvisst að nýta tímann minn og byggja mig upp hef ég lokið við nokkur verkefni sem ég  hafði ýtt frá mér lengi og tekist á við draug sem fylgdi mér. Meira um það síðar.
Það er allt hægt, við þurfum bara að vilja, þora og geta eða eins og ég segi stundum að taka þetta á gæsinni. Get Ætla Skal
Ég hef verið atvinnuleitandi í rúm 2 ár, fékk reyndar afleysingastarf í 9 mánuði en hef verið án atvinnu samfellt s.l. 14 mánuði.  Hvers vegna er ég að segja frá þessu, jú það er ástæða fyrir því. Oftar en ekki mæti ég fordómum og skilningsleysi meðal samferðarmanna og vegna þess að ég er jákvæð að eðlisfari hefur það valdið misskilningi. Fólk heldur að ég sé bara svona ánægð með stöðu mína og þess vegna sé ég ekki döpur, neikvæð eða svartsýn
Ég fór seint í Háskólanám en lauk því skömmu áður en hið margumrædda hrun breytti umhverfi okkar og þ.á.m. mínu  vinnulega séð.  Trúið mér ég hef leitað að vinnu og sótt um fleira en það sem tengist beint minni menntun en enn hef ég ekki komist í eitt einasta viðtal og það tekur á taugarnar. Það getur verið mjög erfitt að fá hverja neitunina á fætur annarri og stundum er það beinlínis kvíðaefni að opna tölvupóstinn.  Það eru einfaldlega svo ótalmargir um hvert starf sem auglýst er
En ég er svo óendanlega heppin, á yndislegan eiginmann og syni ásamt fullt af góðum vinum og öðrum skyldmennum sem er svo gott að vera með.  Ég hef  líka sótt tvö framúrskarandi námskeið þar sem ég kynntist úrvalsfólki sem er og var í sömu stöðu og ég og saman tökumst við á lífið sem atvinnuleitendur.
Þá hef ég stundað líkamsrækt og ögrað sjálfri  mér m.a. með því að framkvæma og stunda  það sem ég hélt að ég gæti ekki gert og haft mikla ánægju af... nefninlega að skokka úti. Meira um það síðar.
Í haust byrja ég í framhaldsnámi á mínu sviði, sem mun ljúka með M.Ed. gráðu,eftir ca 3 ár.  Þegar því lýkur vantar mig bara 3 háskólagráður í viðbót til að ná Georg Bjarnfreðarsyni með sínar 5 (smá grín)
Ég hlakka mikið til þess að setjast aftur á skólabekk með góðri vinkonu úr grunnnáminu, spá og spekúlera með samnemendum og úrvalskennurum af Menntavísindasviði HÍ. Ég var svo heppin að fá að taka þátt í úrvalsátaki Vinnumálastofnunar sem kallast Nám  er vinnandi vegur og er til fyrirmyndar. Flott framtak hjá þeirri stofnun, sem þrátt fyrir allt á stundum góða  spretti....
Atvinnuleitendur upplifa höfnun og neitun oft  mjög serkt og því mikilvægt að taka einn dag í einu og þegar dagarnir verða dimmir þá er gott ráð að fara út og hreyfa sig, skreppa kannski á bókasafnið eða það sem mér finnst alltaf skemmtilegast, á  kaffihús og skoða blöð og bækur.  Góður te- eða kaffibolli gerir kraftaverk....  Stundum koma dagar sem ég  eyði fyrir framan sjónvarpið eða les góða bók, sem er bara allt í lagi.
Þegar mér líður ekki vel og á slæma daga, sem er ekki oft, tala ég um að Pollýanna vinkona mín, hafi farið að heiman. En það er allt í góðu því hún kemur alltaf heim aftur, þessi elska
Ef þú, lesandi góður, þekkir einhvern sem er atvinnuleitandi og hefur verið það lengi hafðu þá í huga orð Einars Ben, aðgát skal höfð  í nærveru sálar. Þú gætir hitt á góðan dag hjá viðkomandi og gert hann enn betri en þú gætir líka hitt á viðkvæma stund og komið af stað skriðu af slæmum dögum þar sem sjálfstraustið  yfirgefur viðkomandi um stund. Umfram allt  ekki minnast á öll störfin sem auglýst eru og haltu sögunum um alla Jóna og Gunnur sem hafa fengið fyrsta starfið  sem þau sóttu um fyrir þig. Það eru einmitt þannig sögur sem við höfum ekki áhuga á að heyra þegar okkur gengur sjálfum seint og ílla að fá vinnu. Það koma dagar þegar við samgleðjumst öllum þeim sem hafa fengið vinnu, sei sei já
Ég trúi því og treysti að einn góðan dag fái ég vinnu og það verður án efa það starf sem  hefur verið mér ætlað og þá verð ég tilbúin, full af eldmóði, jákvæðni og umfram allt við góða heilsu
Nýr bloggari,  sem rennir sér fótskriðu inn á ritvöllinn. Samt ekki alveg glæný því ég hef haldið út bloggi á öðrum vettvangi í nokkur ár
Ákvað að færa mig til, ekki síst  vegna tæknilegra örðugleika á fyrri síðu
Verð hér  af og til með innlegg og hlakka til að taka þátt í umræðum með jákvæðum formerkjum, án niðurrifs og neikvæðra athugasemda